Full Lyrics
Hvar er í heimi hæli tryggt
og hvíld og mæðu fró?
Hvar bærist aldrei hjarta hryggt?
Hvar heilög drottnar ró?
Það er hin djúpa dauðra gröf
þar dvínar sorg og stríð,
er sollin lífs fyrir handan höf
er höfn svo trygg og blíð.
Þú, griðarstaður mæðumanns,
ó, myrka, þögla gröf!
|:Þú ert hið eina hæli hans:|
og himins náðargjöf.